Myndin er tekin skömmu eftir að reyk tók að leggja út úr suðurmunna ganganna. Umferð er enn vísað hjáleið um Hvalfjörð. Ljósm. grh

Búið er að slökkva eld í bíl í Hvalfjarðargöngum – engan sakaði

Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er nú búið að slökkva eld sem kom upp í fólksbíl í Hvalfjarðargöngum laust fyrir klukkan 16 í dag. Viðbragðsáætlun var virkjuð á hæsta forgangi eins og reglur kveða á um þegar eldur verður í jarðgöngum. Viðbragðsaðilar komu jafnt af höfuðborgarsvæðinu og frá Akranesi. Viðbragðsáætlun hefur nú verið afturkölluð. Umferð verður hleypt á göngin að nýju þegar búið verður að reykræsta þau.

UPPFÆRT KL. 17:14:

G. Pét­ur Matthíasson upplýsingafulltrúi hjá Vega­gerðinni var nú rétt í þessu að staðfesta við mbl.is að fleiri en einn hafi verið í bíln­um sem eldurinn kom upp í, en að all­ir hafi kom­ist út úr honum og eng­an hafi sakað.