Þessi hrygna átti bara eftir að hrygna

Síðastliðinn laugardag var boðað til mótmælafundar á Austurvelli í Reykjavík, eins og sagt var frá hér á vefnum um helgina. Að honum stóðu bændur, landeigendur og náttúruverndarsinnar, sem segjast vera orðnir langþreyttir á skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart náttúrunni og villta íslenska laxastofninum. Umhverfisráðherra voru afhent mótmæli en dagskránni lauk með gjörningi þar sem eldislaxar, sem veiddir höfðu verið í Blöndu, voru lagðir framan við tröppur þinghússins. Hér heldur Guðrún Fjeldsted á Ölvaldsstöðum á einni eldishrygnunni. Úr kvið hrygnunnar hékk stór hrognapoki.