
Árni Þór Stefánsson að veiðum um borð í Grími AK. Ljósm. úr safni.
Grímur AK aflahæsti strandveiðibáturinn yfir landið
Landssamband smábátaeigenda hefur tilkynnt eigendum Gríms AK að þeir hafi verið aflahæstir á strandveiðum sumarsins. Skipstjóri á Grími er Árni Freyr Stefánsson en honum til halds og trausts um borð er Stefán Jónsson faðir hans og fyrrum skipstjóri. Aflaverðmætið á Grími í sumar var rúmar 14 milljónir króna og lönduðu þeir feðgar um 48 tonnum í 26 veiðiferðum. Þar af var ufsaafli um 30 tonnum en fyrir ufsann fékkst þokkalegt verð í sumar. Gert var út frá Arnarstapa.