Fréttir

true

Jafntefli hjá Breiðabliki og ÍA í Bestu

Það var ekki boðið upp á mörg tilþrifin í leik Breiðabliks og ÍA í Bestu deild karla í knattspyrnu sem fram fór á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Blikar gátu með sigri skellt sér á topp deildarinnar á meðan Skagamenn hefðu getað fært sig nær toppliðunum með þremur stigum. Fyrri hálfleikur var með rólegasta móti, heimamenn voru…Lesa meira

true

Annir hjá björgunaraðilum á sjó í nótt

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað annars vegar og á Patreksfirði hins vegar voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoðar. Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan hálf fimm í nótt vegna skipverja á smærri fiskibáti sem hafði slasast á fæti og ekki í ástandi til að sigla bátnum…Lesa meira

true

Alvarleg netárás á íslenskan fjölmiðil

Í gær var gerð stórfelld netárás á tölvukerfi allra miðla Árvakurs útgáfufélags í Reykjavík. Hún hafði þær afleiðingar að útsendingar K100 féllu niður og liggja enn niðri og birting mbl.is lá niðri í nokkra klukkutíma. Í tilkynningu frá Árvakri segir að stórfelld netárás hafi verið gerð á tölvukerfi fyrirtækisins. Tölvuárásárhópur þessi hefur gert árásir í…Lesa meira

true

Kynna drög að dagskrá bæjarhátíðarinnar Heim í Búðardal

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal verður haldin helgina 5. – 7. júlí í Dölum. Á vefsíðu Dalabyggðar segir að dagskráin sé uppfull af skemmtun fyrir alla aldurshópa og var hún birt þar með fyrirvara um breytingar. Dagskráin hefst fimmtudagskvöldið 4. júlí með Pub quiz og trúbador mætir á Vínlandssetrið. Á föstudeginum verður eldhátíð að Eiríksstöðum, örsýningin…Lesa meira

true

Nýtt skipulag gerir ráð fyrir fjölgun lóða og stækkun iðnaðarsvæðis

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar er með í kynningarferli vinnslutillögu um skipulagsáform fyrir iðnaðarsvæðið vestan Kvernár. Þar er eina iðnaðarsvæði sveitarfélagsins en núverandi deiliskipulag er 25 ára gamalt, frá 1. júlí 1999. Til stendur að gera breytingar á iðnaðarsvæðinu með það að markmiði að tryggja hagkvæma nýtingu á landi og innviðum og til að auka framboð á lóðum…Lesa meira

true

Grásleppan er nú kvótasett

Frumvarp til laga um kvótasetningu á grásleppu var samþykkt á lokadegi Alþingis í gær. Í nefndaráliti meirihluta atvinnuveganefndar, sem flutti frumvarpið, segir: „Megin tilgangur frumvarpsins er að auka fyrirsjáanleika við grásleppuveiðar og að tryggja betur sjálfbærar og markvissar veiðar.“ Segir þar að á undanförnum árum hafi veiðistjórn grásleppu sætt gagnrýni fyrir þær sakir að vera…Lesa meira

true

Varaþingmaður segir sig úr VG

Lilja Rafney Magnúsdóttir á Suðureyri, fyrrum þingkona Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi og varaþingmaður, hefur sagt sig úr flokknum eftir að þingmenn VG greiddu atkvæði með frumvarpi um kvótasetningar á grásleppu. Í aðsendri grein hér á vef Skessuhorns sem nefndist „Verbúðin í boði VG,“ útskýrir hún ástæður uppsagnar sinnar. Þar skrifar hún m.a: „VG er að…Lesa meira

true

Verkar og selur fisk, sinnir knattspyrnunni og safnar og birtir sögulegar ljósmyndir úr heimabyggð

Viðtal úr safni Skessuhorns við Helga Kristjánsson frá Ólafsvík frá árinu 2013 Maðurinn sem við tölum við rekur litla fiskverkun í Hafnarfirði ásamt bróður sínum. Þeir eru í harkinu. Kaupa fisk á mörkuðum og verka fyrir svipula markaði erlendis. Síðan er hann mikill áhugamaður um knattspyrnu og heldur þá að sjálfsögðu með liði úr heimabænum.…Lesa meira

true

„Búddisminn hjálpaði mér að vinna bug á þunglyndinu“

Viðtal við Erling Antonsson sálfræðiráðgjafa frá Bakka á Akranesi sem birtist í Skessuhorni árið 2013 Erling Antonsson fæddist árið 1965 á Akranesi og ólst þar upp hjá afa sínum og ömmu. Fyrir 21 ári flutti hann frá Íslandi til að leggja stund á sálfræðinám við bandarískan háskóla. Síðan hefur ýmislegt drifið á daga hans. Erling…Lesa meira

true

Silja ráðin verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ

Silja Úlfarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ sem fram fer í Borgarnesi um verslunarmannahelgina í samstarfi við Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) og Borgarbyggð. Silja mun vinna með Ómari Braga Stefánssyni, framkvæmdastjóra móta UMFÍ, að skipulagningu mótsins. Fram kemur á vef UMFÍ að Silja er Hafnfirðingur í húð og hár og landsþekkt sem afrekskona í frjálsum…Lesa meira