
Alvarleg netárás á íslenskan fjölmiðil
Í gær var gerð stórfelld netárás á tölvukerfi allra miðla Árvakurs útgáfufélags í Reykjavík. Hún hafði þær afleiðingar að útsendingar K100 féllu niður og liggja enn niðri og birting mbl.is lá niðri í nokkra klukkutíma. Í tilkynningu frá Árvakri segir að stórfelld netárás hafi verið gerð á tölvukerfi fyrirtækisins. Tölvuárásárhópur þessi hefur gert árásir í nágrannalöndum, meðal annars Svíþjóð, Finnland og Noreg. Þessi hópur skemmdarvarga á rætur að rekja til Rússlands. Framkvæmir hann svokallaða gagnagíslatöku og leikur grunur á að rússneski tölvuárásarhópurinn Akira hafi staðið að baki henni. Í tilkynningunni kemur fram að unnið sé að því að meta áhrif og umfang árásarinnar. Þrátt fyrir allt tókst starfsfólki Morgunblaðsins og Landsprents að gefa út og prenta 16 síðna blað sem barst áskrifendum í dag.