
Þyrla og björgunarskip á vettvangi fyrir austan í nótt. Ljósm. Landsbjörg
Annir hjá björgunaraðilum á sjó í nótt
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað annars vegar og á Patreksfirði hins vegar voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoðar. Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan hálf fimm í nótt vegna skipverja á smærri fiskibáti sem hafði slasast á fæti og ekki í ástandi til að sigla bátnum til hafnar. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði jafnframt út áhöfn þyrlu. Hafbjörg lagði úr höfn rétt fyrir klukkan 5 með sjúkraflutningamann um borð og um svipað leyti fór þyrla í loftið frá Reykjavík.