Hér er litið yfir svæðið sem nú er verið að deiliskipuleggja upp á nýtt. Ljósm. úr deiliskipulagstillögunni.

Nýtt skipulag gerir ráð fyrir fjölgun lóða og stækkun iðnaðarsvæðis

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar er með í kynningarferli vinnslutillögu um skipulagsáform fyrir iðnaðarsvæðið vestan Kvernár. Þar er eina iðnaðarsvæði sveitarfélagsins en núverandi deiliskipulag er 25 ára gamalt, frá 1. júlí 1999. Til stendur að gera breytingar á iðnaðarsvæðinu með það að markmiði að tryggja hagkvæma nýtingu á landi og innviðum og til að auka framboð á lóðum fyrir iðnaðarstarfsemi í sveitarfélaginu til langs tíma. Í endurskoðun nú felst m.a. að deiliskipulagssvæðið verður stækkað úr 4,1 ha í 11,5 ha, lóðum fjölgað og byggingarreitir stækkaðir. Þá eru skilmálar eldra deiliskipulags felldir úr gildi og nýir skilmálar settir, m.a. til að auka fjölbreytni og sveigjanleika í lóðastærðum til langs tíma og tryggja góða umgengni á svæðinu.

Nýtt skipulag gerir ráð fyrir fjölgun lóða og stækkun iðnaðarsvæðis - Skessuhorn