Fréttir

true

Dönsum í takti

Rætt við aðstandendur Brákar- og Hinseginhátíðar Vesturlands Um næstu helgi, dagana 27. – 30. júní, verða Brákarhátíð og Hinseginhátíð Vesturlands haldnar með pompi og prakt í Borgarnesi. Brákarhátíð ættu flestir lesendur að kannast við en hún hefur verið haldin um árabil. Hinseginhátíð Vesturlands fagnar sínu fjórða ári en í ár munu hátíðirnar tvær sameinast í…Lesa meira

true

Göngunum lokað í þrígang sama daginn

Á föstudaginn í síðustu viku var erfiður dagur í rekstri Hvalfjarðarganga, en þeim þurfti að loka í þrígang af ólíkum ástæðum. Fyrst fór hjólreiðamaður niður í göngin, en slíkt er bannað. Skömmu eftir að búið var fjarlægja hann varð árekstur tveggja bíla. Loks bilaði bíll. Á vef Vegagerðarinnar segir um ferlið sem í gang fer,…Lesa meira

true

Kári kominn á toppinn eftir sigur á Sindra

Sindri og Kári mættust í áttundu umferð 3. deildar karla í gær og var viðureignin á Jökulfellsvellinum á Höfn í Hornafirði. Axel Freyr Ívarsson kom Kára yfir á 11 mínútu en á 39. mínútu jafnaði Björgvin Ingi Ólason metin fyrir Sindra og staðan var 1-1 í hálfleik. Dómari leiksins, Milan Djurovic, hafði nóg að gera…Lesa meira

true

Malbiksframkvæmdir framundan í vikunni á tveimur stöðum í Hvalfjarðarsveit

Malbikstöðin fyrir Vegagerðina stefnir á að endurnýja slitlag á tveimur köflum Vesturlandsvegar milli Hvalfjarðarvegar við Melahvarfi og Grundartanga. Framkvæmdir ná yfir tvær nætur í þessari viku, dagana 26.-28. júní nk. þ.e. aðfararnótt fimmtudags 27. júní og aðfararnótt föstudags 28. júní. Stefnt er á að framkvæmdir hefjist kl. 21.00 bæði kvöldin og að opnað verði aftur…Lesa meira

true

Búið er að opna veginn um Kaldadal

Vegagerðin gaf í dag út Hálendiskort nr. 5 en þar er að finna upplýsingar um þá fjallvegi sem umferð er leyfileg um. Helstu breytingar frá síðasta korti eru þær að búið er að opna Kaldadalsveg (550) upp af Borgarfjarðardölum og Loðmundarfjarðarveg (F946).Lesa meira

true

Gott mót hjá Einari Margeiri í Serbíu

Einar Margeir Ágústsson sundmaður úr SA gerði góða ferð ásamt öðrum keppendum á Evrópumeistaramótið í sundi sem fram fór í Serbíu dagana 17.-23. júní. Keppt var í 50 metra útilaug og var hitinn um 30-36 gráður flesta dagana. Einar Margeir gerði sér lítið fyrir og bætti sig í öllum þremur sundum sínum og bætti Akranesmetið…Lesa meira

true

Víkingur í öðru sæti eftir þriðja sigurinn í röð

Það vantaði ekki fjörið og mörkin í leik Víkings Ó. og Hattar/Hugins í 2. deild karla í knattspyrnu sem fram fór á Ólafsvíkurvelli í gær. Leikurinn var opinn og skemmtilegur og liðin fengu fjölmörg færi fyrir utan mörkin sex sem voru skoruð í leiknum. Fyrirliðinn Luke Williams skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Víking með langskoti…Lesa meira

true

Kristín með brons í hnébeygju á HM

Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir lauk keppni á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í -84 kg flokki sem haldið var í Litháen um helgina.  Kristín raðaði niður metum í sínum flokki, setti alls þrjú heimsmet og stóð sig með prýði. Kristín byrjaði vel í hnébeygjunni þar sem hún lyfti seríunni 200-210-217.5 kg og hlaut bronsverðlaun í greininni. Þá…Lesa meira

true

Sumarliðahús víkur fyrir nýbyggingu

Nýverið var skrifað undir samninga vegna nýbyggingar við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Þar verður reist fjögurra hæða fjölbýlishús sem Brákarhlíð fasteignafélag byggir en um er að ræða samvinnuverkefni sem Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimili og Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar standa í sameiningu að. Skrifað var undir samning við Borgarverk um jarðvegsskipti og rif á húsinu, sem í…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu nágrannaslagnum

Afturelding og ÍA áttust við í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á gervigrasvellinum í Mosfellsbæ. Skagakonur byrjuðu betur í leiknum, pressuðu hátt upp völlinn fyrstu 20 mínúturnar og fengu nokkur góð færi í fyrri hálfleiknum sem þeim tókst ekki að nýta. Það var því gegn gangi leiksins þegar Hildur Karítas Gunnarsdóttir…Lesa meira