
Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn
Göngunum lokað í þrígang sama daginn
Á föstudaginn í síðustu viku var erfiður dagur í rekstri Hvalfjarðarganga, en þeim þurfti að loka í þrígang af ólíkum ástæðum. Fyrst fór hjólreiðamaður niður í göngin, en slíkt er bannað. Skömmu eftir að búið var fjarlægja hann varð árekstur tveggja bíla. Loks bilaði bíll.