
Sumarliðahús víkur. Ljósm. hig
Sumarliðahús víkur fyrir nýbyggingu
Nýverið var skrifað undir samninga vegna nýbyggingar við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Þar verður reist fjögurra hæða fjölbýlishús sem Brákarhlíð fasteignafélag byggir en um er að ræða samvinnuverkefni sem Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimili og Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar standa í sameiningu að. Skrifað var undir samning við Borgarverk um jarðvegsskipti og rif á húsinu, sem í daglegu tali Borgnesinga var kallað Sumarliðahús. Framkvæmdir eru nú hafnar og þegar meðfylgjandi mynd var tekin var búið að girða athafnasvæðið af og byrjað að rífa húsið.