
Úr leik Aftureldingar og ÍA á föstudaginn. Ljósm. sas
Skagakonur töpuðu nágrannaslagnum
Afturelding og ÍA áttust við í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á gervigrasvellinum í Mosfellsbæ. Skagakonur byrjuðu betur í leiknum, pressuðu hátt upp völlinn fyrstu 20 mínúturnar og fengu nokkur góð færi í fyrri hálfleiknum sem þeim tókst ekki að nýta. Það var því gegn gangi leiksins þegar Hildur Karítas Gunnarsdóttir skoraði fyrir Aftureldingu fjórum mínútum fyrir hálfleik en á lokamínútunni fengu Skagakonur vítaspyrnu þegar brotið var á Juliönu Mariu Paoletti innan vítateigs. Erna Björt Elíasdóttir steig á punktinn en lét markvörðinn verja frá sér annan leikinn í röð og er líklegast kominn í smá pásu frá vítapunktinum að svo stöddu.