
Malbiksframkvæmdir framundan í vikunni á tveimur stöðum í Hvalfjarðarsveit
Malbikstöðin fyrir Vegagerðina stefnir á að endurnýja slitlag á tveimur köflum Vesturlandsvegar milli Hvalfjarðarvegar við Melahvarfi og Grundartanga. Framkvæmdir ná yfir tvær nætur í þessari viku, dagana 26.-28. júní nk. þ.e. aðfararnótt fimmtudags 27. júní og aðfararnótt föstudags 28. júní. Stefnt er á að framkvæmdir hefjist kl. 21.00 bæði kvöldin og að opnað verði aftur fyrir umferð kl. 6:30 morguninn eftir.
Dagskráin er eftirfarandi með tilheyrandi lokunum og truflun á umferð:
Miðvikudagskvöldið 26. júní frá kl. 21.00 til fimmtudagsmorguns 27. júní kl. 6:30: Yfirlögn á vegkafla við Melahverfi. Hjáleið milli Borgarness og Reykjavík verður um Hvalfjarðarveg! Sérstök hjáleið verður fyrir íbúa Melahverfis að Hvalfjarðarvegi.
Fimmtudagskvöldið 27. júní frá kl. 21.00 til föstudagsmorguns 28. júní kl. 6:30: Yfirlögn á vegkafla ofan við Grundartanga. Hjáleið milli Borgarness og Reykjavík verður um Akrafjallsveg.
Hjáleiðir verða merktar alla dagana og sýna meðfylgjandi merkingaráætlanir hvernig staðið verður að lokunum. Opnað verður fyrir umferð eins fljótt og hægt er. Neyðarakstri (112) verður hleypt í gegnum framkvæmdasvæðið ef með þarf.
