Fréttir

true

Horfin valin besta myndin á kvikmyndahátíð Grundaskóla

Kvikmyndahátíð Grundaskóla á Akranesi var haldin á vordögum skólans, frá 3. til 4. júní. Um 100 nemendur tóku þátt úr 8. til 10. bekk og var markmið hátíðarinnar að efla kvikmyndalæsi, sköpun og kvikmyndaáhuga nemenda. Hátíðin var í samstarfi við Fjölbrautaskólann við Ármúla en þau sjá um að skipuleggja Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna sem er haldin árlega…Lesa meira

true

Metabolic leikarnir fóru fram í annað sinn í Borgarnesi – Myndir

Síðastliðinn laugardag fóru fram Metabolic leikar í Borgarnesi en þetta er annað árið í röð sem leikarnir eru haldnir þar. Alls tóku 14 lið þátt, með tveimur keppendum í hverju liði, en þeir voru beðnir um að setja mikinn metnað í búninga þetta árið ásamt því að mæta tímanlega fyrir upphitun. Aðalmarkmið leikanna er að…Lesa meira

true

Karnival og kátir krakkar í Brekkó – Litrík myndasyrpa

Það var stuð og stemning í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun þegar haldið var Karnival í skólanum síðasta almenna skóladaginn. Þar mættu nemendur og kennarar í litríkum búningum og skemmtu sér saman. Á morgun verður síðan morgunstund fyrir nemendur og starfsfólk og að henni lokinni skólaslit. Fjörið hófst með skrúðgöngu frá Akratorgi og leiddi trommusveit…Lesa meira

true

Sæskrímsli á ferðinni á Breið – Myndasyrpa

Seinni partinn í gær var sýningin Sæskrímslin sem er götuleikhússýning Sirkushópsins Hringleiks flutt á Breiðinni á Akranesi. Sýningin átti upphaflega að fara fram við Akraneshöfn en vegna veðurs var hún flutt inn og við Hafbjargarhúsið á Breið. Um var að ræða síðasta viðburðinn á Barnamenningarhátíð Akraneskaupstaðar sem hófst síðustu vikuna í maí. Góð mæting var…Lesa meira

true

Fundu fíkniefni við leit í bifreið

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 56 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi en sá sem hraðast ók mældist á 138 km/hraða á klst. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og við leit í bifreið hans fundust svo um 40 grömm af meintum fíkniefnum. Tvö önnur fíkniefnamál…Lesa meira

true

Aðsóknarmet skiptinema í LbhÍ

Á næstu haustönn er skráður metfjöldi skiptinema í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Skiptinemarnir koma og búa á nemendagörðunum á Hvanneyri og stunda þar nám sitt. Nemendurnir koma frá samstarfsháskólum LbhÍ í Svíþjóð, Finnlandi, Frakklandi, Tékklandi, Þýskalandi, Austurríki og Hollandi. Skiptinemarnir stunda nám á mismunandi sviðum eins og landbúnaðarvísindum, skógfræði, lífvísindum, umhverfisvísindum, náttúruvernd og…Lesa meira

true

Verðstríð þýðir að ódýrast er að kaupa eldsneytið í Borgarnesi

Um miðjan maí kynnti Atlantsolía þá ákvörðun sína að ódýrasta eldsneytið yrði þá fáanlegt í Borgarnesi. Í kjölfarið lækkaði Orkan sömuleiðis útsöluverð sitt í Borgarnesi og jafnaði verð Atlantsolíu. Nú hefur ÓB bæst í hópinn og þessi þrjú olíufélög bjóða langlægsta verðið á eldsneyti á Vesturlandi í Borgarnesi. Líterinn af díselolíu kostar nú hjá þessum…Lesa meira

true

Viðbygging við Lýsuhólsskóla á lokametrunum

Unnið hefur við stækkun á Lýsuhólsskóla í Staðarsveit með viðbyggingu en í henni verða fjórar rúmgóðar kennslustofur. Viðbyggingin er byggð úr tveimur húseiningum sem Snæfellsbær keypti notaðar af Hjallastefnunni á síðasta ári. Skólinn mun stækka til muna við þessa framkvæmd, eða um 250 fermetra. Nú þegar hefur leikskólinn verið færður í eina af nýju kennslustofunni…Lesa meira

true

Fóru í heimsókn á slökkvistöðina

Fimmtudaginn 30. maí fór elstu krakkarnir í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit í útskriftarferð. Farið var með rútu á Akranes í skógræktina Garðalund þar sem farið var í leiki og sprell. Því næst var gengið í heimsókn til eins kennara sem börnunum þótti mjög skemmtilegt. Farið var í pizzaveislu á Galito við mikinn fögnuð. Eftir matinn…Lesa meira

true

Flytja sig yfir götuna

Hluti starfsmanna Akraneskaupstaðar stóð í stórræðum í gær við flutning á starfsstöðvum sínum frá Dalbraut 4 yfir á Dalbraut 1 þar sem Íslandsbanki var áður til húsa. Alls er um að ræða um 20 starfsmenn sem flytja sig yfir götuna og ættu að vera komnir með nýja vinnuaðstöðu á næstu dögum. Þegar blaðamaður Skessuhorns leit…Lesa meira