
Fundu fíkniefni við leit í bifreið
Í liðinni viku voru höfð afskipti af 56 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi en sá sem hraðast ók mældist á 138 km/hraða á klst. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og við leit í bifreið hans fundust svo um 40 grömm af meintum fíkniefnum. Tvö önnur fíkniefnamál komu upp þar sem hald var lagt á meint fíkniefni í neysluskömmtum.