Það var mikið fjör fyrir framan slökkvistöðina. Ljósm. Skýjaborg

Fóru í heimsókn á slökkvistöðina

Fimmtudaginn 30. maí fór elstu krakkarnir í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit í útskriftarferð. Farið var með rútu á Akranes í skógræktina Garðalund þar sem farið var í leiki og sprell. Því næst var gengið í heimsókn til eins kennara sem börnunum þótti mjög skemmtilegt. Farið var í pizzaveislu á Galito við mikinn fögnuð. Eftir matinn var rölt og kíkt á bókasafnið.

Fóru í heimsókn á slökkvistöðina - Skessuhorn