
Ekki sérlega árennileg. Ljósmyndir: vaks
Sæskrímsli á ferðinni á Breið – Myndasyrpa
Seinni partinn í gær var sýningin Sæskrímslin sem er götuleikhússýning Sirkushópsins Hringleiks flutt á Breiðinni á Akranesi. Sýningin átti upphaflega að fara fram við Akraneshöfn en vegna veðurs var hún flutt inn og við Hafbjargarhúsið á Breið. Um var að ræða síðasta viðburðinn á Barnamenningarhátíð Akraneskaupstaðar sem hófst síðustu vikuna í maí. Góð mæting var á viðburðinn og sum börnin héldu fast í foreldra sína þegar hræðslan kom yfir þau. Blaðamaður Skessuhorns var á staðnum og tók nokkrar myndir af skrímslum af öllum stærðum og gerðum.