default

Verðstríð þýðir að ódýrast er að kaupa eldsneytið í Borgarnesi

Um miðjan maí kynnti Atlantsolía þá ákvörðun sína að ódýrasta eldsneytið yrði þá fáanlegt í Borgarnesi. Í kjölfarið lækkaði Orkan sömuleiðis útsöluverð sitt í Borgarnesi og jafnaði verð Atlantsolíu. Nú hefur ÓB bæst í hópinn og þessi þrjú olíufélög bjóða langlægsta verðið á eldsneyti á Vesturlandi í Borgarnesi. Líterinn af díselolíu kostar nú hjá þessum þremur félögum 300 krónur og tíu aura í Orkunni en 300 kr. og tuttugu aura hjá Atlantsolíu og ÓB. Hjá N1 í Borgarnesi kostar lítrinn 315,10 kr. Verð á bensíni er frá 292,70 til 292,80 hjá félögunum þremur í Borgarnesi. Hæsta útsöluverð eldsneytis á Vesturlandi eru hjá N1 stöðvum á Breiðabliki, Búðardal, Grundarfirði, Hellissandi, Ólafsvík og Reykholti.

Verðmunur á dýrasta og ódýrasta útsölustað innan Vesturlands er þannig 9% og hægt að mæla með því fyrir fólk að koma við í Borgarnesi til að tanka á bílinn. Sjá nánar hér að neðan: