Fréttir

true

Undarlegt flöskuskeyti

Í Straumfirði á Mýrum fannst 9. maí í vor flöskuskeyti. Það er ekki fyrsta flöskuskeytið sem lendir uppi við strandlengju Straumfjarðar, því oft hafa komið skeyti frá ungmennum víða að en einkum í kringum Ísland. Þá hafa þau Svanur Steinarsson og Elfa Hauksdóttir jafnan haft samband við viðkomandi aðila og skilað flöskuskeytinu. Nýjasta flöskuskeytið er…Lesa meira

true

Útivistarfélög álykta um göngu- og hjólastíg á Borgarfjarðarbrú

Stjórn Ferðafélags Borgarfjarðar og stjórn Hjólreiðafélags Vesturlands sendu nýverið bréf til sveitarstjórnar Borgarbyggðar með áskorun um að beita sér fyrir því að gerður verði stígur fyrir gangandi og hjólandi umferð á brúna yfir Borgarfjörð. „Fyrir nokkru voru gerðir ágætir göngu- og hjólastígar að brúnni sitt hvorum megin en þeir eru lítið sem ekkert nýttir þar…Lesa meira

true

Þjónustukönnun Byggðastofnunar er nú í gangi

Nú fer fram könnun sem Maskína framkvæmir fyrir hönd Byggðastofnunar meðal íbúa um land allt (utan höfuðborgarsvæðis) vegna rannsókna á þjónustusókn og væntingum til breytinga á þjónustu. Spurt er: -Hvaða þjónustu nota íbúar og hvert fara þeir til að sækja þá þjónustu? -Hvaða þjónustu þarf helst að bæta við eða efla? -Hvaða þjónustu óttast íbúar…Lesa meira

true

VIT-HIT leikarnir í sundi fóru fram um helgina

Það var mikið fjör í Jaðarsbakkalaug á Akranesi um helgina þar sem VIT-HIT leikarnir í 25 metra laug í sundi fóru fram. Alls mættu um 360 keppendur á mótið frá tólf félögum og gistu keppendur í Grundaskóla. Fjölmargir sjálfboðaliðar komu að verkefninu og stóðu sundfólk og foreldrar vaktina alla helgina sem dómarar, við riðlastjórn, í…Lesa meira

true

Fimm laxar á land úr Norðurá í morgun

Veiði hófst i Norðurá í Borgarfirði í morgun. Nú verður hver laxveiðiáin af annarri opnuð næstu daga. Veður var fremur óspennandi til veiða í morgun; kuldi og trekkur. Það var Ævar Örn Úlfarsson sem veiddi fyrsta laxinn og var það 81 sentimetra hrygna. ,,Við erum búnir að setja í laxa en ekki náð fiski ennþá,“…Lesa meira

true

Útskrift í leikskólanum Uglukletti

Þriðjudaginn 28. maí voru útskrifuð 20 börn úr leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi sem ætla að setjast á grunnskólabekk næsta vetur. Dagurinn þeirra bauð upp á ferðalag í Paradísarlaut í Borgarfirði ásamt kennurum og foreldrum. Klukkan fjögur var svo haldin hátíðleg útskrift í Hjálmakletti þar sem húsnæði Uglukletts er orðið of lítið fyrir svo stórar samkomur.…Lesa meira

true

Uppskeruhátíð hjá íþróttagörpum 60 plús

Átakið Heilsuefling 60+ í Grundarfirði fagnaði uppskeru vetrarins með kaffisamsæti og bingókeppni síðasta fimmtudag. Nú fer hópurinn í verðskuldað sumarfrí þó að fólkið eigi eflaust eftir að vera duglegt að hreyfa sig í sumar. Það er Líkamsræktin í Grundarfirði sem stendur fyrir átakinu og hefur þetta framtak slegið í gegn undanfarin ár. Þau bíða eflaust…Lesa meira

true

ÍA í leit að nýjum þjálfara

Körfuknattleiksþjálfarinn Nebosja Knezevic sem hefur þjálfað meistaraflokk ÍA undanfarin tvö ár hefur lokið samningi sínum og er á förum frá félaginu. Nebosja hefur einnig verið yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu og þjálfari hjá 8. flokki stúlkna og 7. flokki drengja. „Við þökkum Nebo fyrir sitt framlag til félagsins og óskum honum góðs gengis í þeim…Lesa meira

true

Agnið Streetfood opnað við Stykkishólmshöfn

Það bættist í veitingaflóruna í Stykkishólmi á laugardaginn en þá var matarvagninn Agnið Streetfood opnaður við höfnina. Baldur Úlfarsson og hans fjölskylda keyptu vagninn og nafnið en hafa gert breytingar á matseðli. „Við munum bjóða upp á taco, pítur og hamborgara en kjötið í hamborgarana og píturnar kemur úr héraði og svo erum við með…Lesa meira