Fréttir

true

Jöfnunarmark í blálokin hjá Víkingi

Reynir Sandgerði og Víkingur Ólafsvík tókust á í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var viðureignin á Brons vellinum í Sandgerði. Leikurinn hófst frekar brösuglega því eftir aðeins mínútu leik þurfti annar aðstoðardómarinn að yfirgefa völlinn eftir að hafa meiðst við störf á hliðarlínunni. Leikmenn gengu til búningsklefa og dvöldu þar í um…Lesa meira

true

Sjómannadagurinn á Akranesi

Dagskrá sjómannadagsins á Akranesi var með hefðbundnu sniði. Dagskráin hófst með minningarstund í kirkjugarðinum, þá var messa í Akraneskirkju þar sem tveir sjómenn voru heiðraðir fyrir störf sín. Kellingar gengu sögugöngu og fræddu gesti um skólahald. Um klukkan 14 hófst dagskrá á bryggjunni og höfninni í umsjón Björgunarfélags Akraness. Veðrið hefur oft verið betra á…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit gerir samning við Félag eldri borgara

Síðastliðinn fimmtudag var undirritaður samningur við Félag eldri borgara í Hvalfjarðarsveit um endurgjaldslaus afnot af íþróttasalnum í Heiðarborg, tvo daga í viku, frá 1. júní til 21. ágúst næstkomandi. Félagið hyggst með afnotum að húsinu halda uppi félagsstarfi og hreyfingu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu á þriðjudögum og fimmtudögum í sumar. „Sveitarfélagið óskar FEBHV velfarnaðar…Lesa meira

true

Komu ríðandi síðasta skóladaginn

Það vakti nokkra eftirtekt í morgun klukkan rúmlega átta þegar tveir nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi mættu í skólann ríðandi, báðir með tvo til reiðar. Í dag var síðasti skóladagurinn þeirra á Varmalandi en þeir Askur Týr L. Egilsson og Bergur Brynjarsson hafa verið í skólanum alla sína grunnskólagöngu. Á morgun, þriðjudaginn 4. júní, verða…Lesa meira

true

Dekk og smur fagnaði 30 ára afmæli

Það var mikið fjör í húsakynnum Dekk og smur í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag þegar fagnað var 30 ára afmæli verkstæðisins. Í tilefni tímamótanna var Hólmurum og öðrum viðskiptavinum boðið á opið hús. Gæddu gestir sér á veitingum í föstu og fljótandi formi, en meðal annars var boðið upp á smárétti frá Skúrnum, afmælisköku frá Nesbrauði…Lesa meira

true

Lions konur gáfu til Höfða

Á föstudaginn komu félagskonur í Lionsklúbbnum Eðnu á Akranesi færandi hendi og færðu hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða hálfa milljón króna að gjöf. Peningagjöfin verður notuð upp í kostnað við að reisa girðingu í garði Höfða að sunnanverðu. Markmiðið með að koma upp slíkri girðingu er að skapa öruggt umhverfi til útiveru fyrir heilabilaða íbúa heimilisins.…Lesa meira

true

Búist er við mjög slæmu veðri víða á landinu

Síðdegis í dag og næstu tvo daga er búist við mjög slæmu veðri miðað við árstíma um mestallt landið. Það hvessir seinnipartinn í dag og bætir í úrkomu, norðvestan hvassviðri eða stormur verður á Norður- og Austurlandi í kvöld með slyddu eða snjókomu. Kólnandi veður. Norðan og norðvestan 13-23 m/sek á morgun, hvassast austantil. Slydda…Lesa meira

true

Gjörningur framinn á Skógarstrandarvegi

Í gærkvöldi var framinn táknrænn gjörningur á Skógarstrandarvegi í Dölum. Meðfylgjandi myndir voru teknar vestan við bæinn Gunnarsstaði á Skógarströnd. Skessuhorni voru sendar myndirnar en þess jafnframt óskað að myndhöfunda yrði ekki getið, enda um borgaralega óhlýðni að ræða. Búið er að planta fallegum sumarblómum í dýpstu holurnar í veginum. Gjörningur þessi er samkvæmt heimildum…Lesa meira

true

Sjómannadagshelgin fór vel fram í Grundarfirði – myndasyrpa

Sjómannadagshelgin í Grundarfirði fór þokkalega vel fram um liðna helgi. Sjómenn komu með fiskasýningu á leikskólann á föstudagsmorguninn. Krakkasprell var í sundlauginni á föstudeginum og svo kom Íþróttaálfurinn í heimsókn. Á laugardeginum bauð Vélsmiðja Grundarfjarðar upp á hoppukastala og sprell áður en hefðbundin hátíðarhöld voru á hafnarsvæðinu. Sjómannadagsráð bauð uppá pylsur og safa og svo…Lesa meira

true

Skóflustungur að nýju íþróttahúsi við Heiðarborg

Á fimmtudag í síðustu viku voru teknar fyrstu skóflustungurnar að nýju íþróttahúsi við Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit, en um er að ræða stærstu einstöku framkvæmd sveitarfélagsins í rúman áratug. Fram kemur á vef Hvalfjarðarsveitar að verkefnið eigi sér langa forsögu en vinna að því hófst í upphafi síðasta kjörtímabils. „Frá upphafi hefur verið vandað til verka…Lesa meira