
Atli Rúnar Sigurþórsson og Theódóra Matthíasdóttir. Ljósmyndir: sá
Dekk og smur fagnaði 30 ára afmæli
Það var mikið fjör í húsakynnum Dekk og smur í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag þegar fagnað var 30 ára afmæli verkstæðisins. Í tilefni tímamótanna var Hólmurum og öðrum viðskiptavinum boðið á opið hús. Gæddu gestir sér á veitingum í föstu og fljótandi formi, en meðal annars var boðið upp á smárétti frá Skúrnum, afmælisköku frá Nesbrauði og harðfisk frá Friðborg. Margt var um manninn og vel fór á með gestum sem rifjuðu upp góða tíma undir ljúfum tónum Heimis Laxdals, farandsöngvara Stykkishólms.