
Búist er við mjög slæmu veðri víða á landinu
Síðdegis í dag og næstu tvo daga er búist við mjög slæmu veðri miðað við árstíma um mestallt landið. Það hvessir seinnipartinn í dag og bætir í úrkomu, norðvestan hvassviðri eða stormur verður á Norður- og Austurlandi í kvöld með slyddu eða snjókomu. Kólnandi veður. Norðan og norðvestan 13-23 m/sek á morgun, hvassast austantil. Slydda eða rigning nærri sjávarmáli fyrir norðan og austan, annars snjókoma. Hiti 0 til 4 stig. Úrkomulítið sunnantil og við vesturströndina með hita að 9 stigum yfir daginn.
Einna skást verður veðrið hér á vesturhluta landsins. Við Faxaflóa- og Breiðafjarðarsvæðið er engu að síður gert ráð fyrir að gangi í norðan 13-20 m/s síðdegis í dag. Hvassast verður í vindstrengjum við fjöll og snarpar hviður. Varasamt ferðaveður fyrir öktæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Við Breiðafjörð má búast við snjóþekju á fjallvegum.
Auk hríðarveðurs norðan- og norðaustanlands, þar sem appelsínugul viðvörun tekur gildi, vill Vegagerðin vekja athygli á sviptivindum suðaustanlands með NV-átt frá því í kvöld. Foráttuhvasst verður á milli Hafnar og Djúpavogs, en hviður yfir 30 m/s frá Eyjafjöllum og austur á Reyðarfjörð. Áfram hvasst á morgun. Vegagerðin fyrirhugar að loka hringveginum (1) um Mývatns- og Möðrudalsöræfi kl. 20:00 í kvöld vegna veðurs. Næstu upplýsingar verða sendar út kl. 09:00 í fyrramálið. Hringveginum (1) um Öxnadalsheiði verður lokað kl. 22:00 í kvöld vegna veðurs. Næstu upplýsingar sendar kl. 09:00 í fyrramálið. Eins er líklegt að það verði gripið til lokana á Suðausturlandi, milli Skaftafells og Djúpavogs.