Askur Týr Laubert Egilsson og Bergur Brynjarsson. Ljósm: Ása Erlingsdóttir

Komu ríðandi síðasta skóladaginn

Það vakti nokkra eftirtekt í morgun klukkan rúmlega átta þegar tveir nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi mættu í skólann ríðandi, báðir með tvo til reiðar. Í dag var síðasti skóladagurinn þeirra á Varmalandi en þeir Askur Týr L. Egilsson og Bergur Brynjarsson hafa verið í skólanum alla sína grunnskólagöngu. Á morgun, þriðjudaginn 4. júní, verða skólaslit, og um leið verður þetta í síðasta skipti sem skólinn útskrifar nemendur úr 10. bekk. Það er vegna breytinga sem sveitarstjórn ákvað í vetur að gera á þessari 69 ára starfsstöð skólans.

Komu ríðandi síðasta skóladaginn - Skessuhorn