
Krökkunum á leikskólanum Sólvöllum gafst kostur á að skoða fiska hafsins á leikskólalóðinni á föstudaginn.
Sjómannadagshelgin fór vel fram í Grundarfirði – myndasyrpa
Sjómannadagshelgin í Grundarfirði fór þokkalega vel fram um liðna helgi. Sjómenn komu með fiskasýningu á leikskólann á föstudagsmorguninn. Krakkasprell var í sundlauginni á föstudeginum og svo kom Íþróttaálfurinn í heimsókn. Á laugardeginum bauð Vélsmiðja Grundarfjarðar upp á hoppukastala og sprell áður en hefðbundin hátíðarhöld voru á hafnarsvæðinu. Sjómannadagsráð bauð uppá pylsur og safa og svo var keppt í hinum ýmsu þrautum. Á sunnudeginum var sjómannamessa þar sem bræðurnir Páll Guðfinnur og Ingi Þór Guðmundssynir voru heiðraðir.