Hluti af Lions konum ásamt Kjartani Kjartanssyni framkvæmdastjóra Höfða við afhendinguna. Ljósm. aðsendar

Lions konur gáfu til Höfða

Á föstudaginn komu félagskonur í Lionsklúbbnum Eðnu á Akranesi færandi hendi og færðu hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða hálfa milljón króna að gjöf. Peningagjöfin verður notuð upp í kostnað við að reisa girðingu í garði Höfða að sunnanverðu. Markmiðið með að koma upp slíkri girðingu er að skapa öruggt umhverfi til útiveru fyrir heilabilaða íbúa heimilisins.

Lions konur gáfu til Höfða - Skessuhorn