
Það var fjölmenni við útskriftina í Hjálmakletti. Ljósm. borgarbyggd.is
Útskrift í leikskólanum Uglukletti
Þriðjudaginn 28. maí voru útskrifuð 20 börn úr leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi sem ætla að setjast á grunnskólabekk næsta vetur. Dagurinn þeirra bauð upp á ferðalag í Paradísarlaut í Borgarfirði ásamt kennurum og foreldrum. Klukkan fjögur var svo haldin hátíðleg útskrift í Hjálmakletti þar sem húsnæði Uglukletts er orðið of lítið fyrir svo stórar samkomur.