Hingað og ekki lengra! Göngustígur er að brúnni, en ekki yfir hana. Ljósm. hig

Útivistarfélög álykta um göngu- og hjólastíg á Borgarfjarðarbrú

Stjórn Ferðafélags Borgarfjarðar og stjórn Hjólreiðafélags Vesturlands sendu nýverið bréf til sveitarstjórnar Borgarbyggðar með áskorun um að beita sér fyrir því að gerður verði stígur fyrir gangandi og hjólandi umferð á brúna yfir Borgarfjörð. „Fyrir nokkru voru gerðir ágætir göngu- og hjólastígar að brúnni sitt hvorum megin en þeir eru lítið sem ekkert nýttir þar sem stíginn yfir brúna sjálfa vantar. Á brúnni eru tvær akgreinar fyrir bílaumferð en ekki gert ráð fyrir annarri umferð en akandi. Umferðarhraðinn á brúnni er það mikill að flestir veigra sér við að fara gangandi eða hjólandi þar yfir,“ segir í erindi félaganna.

Útivistarfélög álykta um göngu- og hjólastíg á Borgarfjarðarbrú - Skessuhorn