Aðstandendur myndarinnar Horfin voru ánægð með verðlaunin sín. Ljósm. vaks

Horfin valin besta myndin á kvikmyndahátíð Grundaskóla

Kvikmyndahátíð Grundaskóla á Akranesi var haldin á vordögum skólans, frá 3. til 4. júní. Um 100 nemendur tóku þátt úr 8. til 10. bekk og var markmið hátíðarinnar að efla kvikmyndalæsi, sköpun og kvikmyndaáhuga nemenda. Hátíðin var í samstarfi við Fjölbrautaskólann við Ármúla en þau sjá um að skipuleggja Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna sem er haldin árlega í Bíó Paradís.

Horfin valin besta myndin á kvikmyndahátíð Grundaskóla - Skessuhorn