
Karnival og kátir krakkar í Brekkó – Litrík myndasyrpa
Það var stuð og stemning í Brekkubæjarskóla á Akranesi í morgun þegar haldið var Karnival í skólanum síðasta almenna skóladaginn. Þar mættu nemendur og kennarar í litríkum búningum og skemmtu sér saman. Á morgun verður síðan morgunstund fyrir nemendur og starfsfólk og að henni lokinni skólaslit.
Fjörið hófst með skrúðgöngu frá Akratorgi og leiddi trommusveit alla hersinguna að grunnskólanum. Að þessu sinni var Karnivalið haldið innan dyra vegna veðurs en það kom þó ekki í veg fyrir að nemendur gátu skemmt sér við ýmislegt, flakkað á milli stöðva og leikið sér. Boðið var að lokum upp á pylsur í tilefni dagsins og ljóst að nemendur fóru saddir og sælir heim á leið um hádegisbilið. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við og tók nokkrar myndir af hressum nemendum og starfsfólki.

















