Fréttir

true

Kynntist grásleppuveiðum ungur

Rætt við Guðmund Jón Amlín, fyrrverandi útgerðarmann og nú yfirkokk um borð í Farsæli SH Guðmundur Jón Amlin er giftur Silju Sigurjónsdóttur og eiga þau tvo unga og spræka stráka; Alexander og Ísak en þau eru búsett í Stykkishólmi. Guðmundur hefur verið viðloðandi sjóinn alla sína ævi en til að fylgjast vel með umferð hafnarinnar…Lesa meira

true

Fótboltabúðir fyrir stelpur í byrjun júní á Akranesi

Sameiginleg lið ÍA, Skallagríms og Víkings Ólafsvíkur í 3. flokki kvenna í knattspyrnu taka höndum saman í sumar og halda til keppni á USA Cup í Bandaríkjunum um miðjan júlí. Alls eru þetta 26 stelpur sem keppa sem tvö blönduð lið og eru þær skráðar með lið í árgöngum 2008 og 2009. Flestar koma frá…Lesa meira

true

Veiddu eldislax í Haukadalsvatni

„Við bræður vorum á ferð í Efri Haukadalsá á mánudaginn og áttum þá leið niður að Haukadalsvatni og tókum nokkur köst í vatnið,“ sagði Þröstur Reynisson sem var á ferð í Dölunum með bróður sínum Úlfari. „Það kom strax fiskur á hjá okkur en það reyndist vera eldislax. Við köstum aftur og sáum líf en…Lesa meira

true

Byrjaði á gamla grásleppubát afa síns

Rætt við Kjartan Pál Sveinsson, trillukarl og formann Strandveiðifélags Íslands Ungur fékk Kjartan Páll Sveinsson mikinn áhuga á sjómannslífinu en afi hans, Kjartan í Jónsnesi, var trillukarl og fékk Kjartan Páll ungur góðan skóla hjá afa sínum. „Ég var mættur til hans um leið og skólinn var búinn á vorin og var þá hjá honum…Lesa meira

true

Slá saman Brákarhátíð og Hinseginhátíð Vesturlands

Hinseginhátíð Vesturlands og Bæjarhátíðin Brákarhátíð í Borgarnesi verður að þessu sinni slegið saman í eina stórhátíð dagana 27.-30. júní. Hinseginhátíð Vesturlands verður haldin núna í fjórða skipti. Hún hefur áður verið haldin í Borgarnesi, Ólafsvík, Akranesi og nú aftur í Borgarnesi. Hápunktur helgarinnar verður gleðiganga Hinseginhátíðar Vesturlands á laugardeginum ásamt fjölbreyttri skemmtidagskrá að henni lokinni.…Lesa meira

true

Björgunarbátasjóður fékk eina milljón króna í styrk

Björgunarbátasjóður Snæfellsness fékk veglegan styrk í gær frá Fiskmarkaði Íslands. Styrkurinn var upp á eina milljón króna og rennur til kaupa á nýju björgunarskipi Lífsbjargar sem nú er í smíðum í Finnlandi. Styrkurinn var veittur á aðalfundi Fiskmarkaðs Íslands sem haldinn var í björgunarstöðinni Von í Rifi.Lesa meira

true

Margrét Ágústa er nýr framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands

Nýleg stjórn Bændasamtaka Íslands hefur gengið frá ráðningu Margrétar Ágústu Sigurðardóttur í starf framkvæmdastjóra samtakanna frá og með 1. ágúst næstkomandi. Tekur hún við keflinu af Örvari Þór Ólafssyni, sem tók við því hlutverki tímabundið í byrjun apríl síðastliðnum samhliða störfum sínum sem fjármálastjóri samtakanna. Þar áður gegndi Vigdís Häsler starfinu. Hagvangur annaðist ráðningarferlið og…Lesa meira

true

Skagakonur unnu góðan sigur á Selfossi

Eftir tvo tapleiki í röð gegn FHL og Fram komust Skagakonur aftur á sigurbraut í Lengjudeildinni þegar þær mættu liði Selfoss í gærkvöldi sem var fyrir leik án taps í deildinni með einn sigur og tvö jafntefli. Það voru ansi góðar aðstæður á Jáverk-vellinum á Selfossi til knattspyrnuiðkunar, veðrið með besta móti og smá gola.…Lesa meira

true

Kjörfundir misjafnlega langir

Laugardaginn 1. júní gengur þjóðin að kjörborðinu og kýs sjöunda forseta lýðveldisins. Kosið er í öllum sveitarfélögum landsins. Athygli er vakin á því að kjörfundir eru misjafnlega langir og eru íbúar eindregið hvattir til að kynna sér auglýsingar sveitarfélaga þar að lútandi. Þeir kjörfundir sem eru lengstir hefjast klukkan 9 að morgni og lýkur klukkan…Lesa meira

true

Auglýsa forval vegna byggingar fjölbýlishúss í Borgarnesi

Stefna að byggingu fyrir kynslóðir menntskælinga og eldra fólks Brákarhlíð fasteignafélag í Borgarnesi auglýsir í Skessuhorni vikunnar forval þar sem óskað er eftir umsóknum frá verktökum sem vilja taka þátt í útboði á nýbyggingu fjölbýlishúss við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Á þeirri lóð stendur nú eldra íbúðarhús, oft kallað Sumarliðahús, en það verður rifið. Í…Lesa meira