
Kjörfundir misjafnlega langir
Laugardaginn 1. júní gengur þjóðin að kjörborðinu og kýs sjöunda forseta lýðveldisins. Kosið er í öllum sveitarfélögum landsins. Athygli er vakin á því að kjörfundir eru misjafnlega langir og eru íbúar eindregið hvattir til að kynna sér auglýsingar sveitarfélaga þar að lútandi. Þeir kjörfundir sem eru lengstir hefjast klukkan 9 að morgni og lýkur klukkan 22, eins og t.d. á Akranesi þar sem kosið verður að þessu sinni í húsi Fjölbrautaskólans. Í flestum sveitarfélögum er þó ekki opnað fyrr en klukkan 10. Einnig er mismunandi hvenær kjörfundum lýkur. Sem dæmi þá hefst kjörfundur í Dalabyggð klukkan 10 og lýkur klukkan 18. Þar er nú ein kjördeild og kosið í Dalabúð. Í Borgarbyggð eru fjórar kjördeildir og eru kjörfundir misjafnlega langir; lýkur ýmist klukkan 20 (Lindartunga og Þinghamar) eða 22 (Borgarnes og Kleppjárnsreykir). Í Hvalfjarðarsveit lýkur kjörfundi klukkan 21, en kosið er í stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3. Í Snæfellsbæ eru þrjár kjördeildir og einnig misjafnt hversu lengi kjörfundir verða opnir. Stystur er hann á Lýsuhóli þar sem honum lýkur klukkan 19. Það er því engin ein regla sem gildir og ítrekað fyrir fólki að kynna sér vel stað og stund kjörfunda, því enginn vill koma að læstum dyrum.