
Þröstur Reynisson með laxinn úr Haukadalsvatni. Ljósm. aðsend
Veiddu eldislax í Haukadalsvatni
„Við bræður vorum á ferð í Efri Haukadalsá á mánudaginn og áttum þá leið niður að Haukadalsvatni og tókum nokkur köst í vatnið,“ sagði Þröstur Reynisson sem var á ferð í Dölunum með bróður sínum Úlfari. „Það kom strax fiskur á hjá okkur en það reyndist vera eldislax. Við köstum aftur og sáum líf en hættum síðan veiðum þarna. Það var nóg fyrir okkur að fá þennan eldislax, við áttum alls ekki von á þessu. Við gengum frá laxinum í frauðkassa og komum honum suður í Veiðimálastofnun,“ sagði Þröstur.