
Gleðiganga Hinsegin hátíðar Vesturlands sem haldin var í Borgarnesi 2021, í fyrsta skipti. Hér má sjá krakka úr Grunnskólanum í Borgarnesi um borð í vörubíl frá JBH Vélum. Ljósm. úr safni/ glh
Slá saman Brákarhátíð og Hinseginhátíð Vesturlands
Hinseginhátíð Vesturlands og Bæjarhátíðin Brákarhátíð í Borgarnesi verður að þessu sinni slegið saman í eina stórhátíð dagana 27.-30. júní. Hinseginhátíð Vesturlands verður haldin núna í fjórða skipti. Hún hefur áður verið haldin í Borgarnesi, Ólafsvík, Akranesi og nú aftur í Borgarnesi. Hápunktur helgarinnar verður gleðiganga Hinseginhátíðar Vesturlands á laugardeginum ásamt fjölbreyttri skemmtidagskrá að henni lokinni.