Erla Karitas var á skotskónum gegn Selfossi. Ljósm. vaks

Skagakonur unnu góðan sigur á Selfossi

Eftir tvo tapleiki í röð gegn FHL og Fram komust Skagakonur aftur á sigurbraut í Lengjudeildinni þegar þær mættu liði Selfoss í gærkvöldi sem var fyrir leik án taps í deildinni með einn sigur og tvö jafntefli. Það voru ansi góðar aðstæður á Jáverk-vellinum á Selfossi til knattspyrnuiðkunar, veðrið með besta móti og smá gola. Áhorfendur voru varla búnir að fá sér sæti í stúkunni þegar fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 2. mínútu. Fyrirgjöf kom fyrir mark Selfoss á fjærstöngina þar sem Erla Karitas Jóhannesdóttir tók boltann niður í teignum og setti boltann fram hjá Karen Rós Torfadóttur markverði Selfyssinga. Gestirnir tvöfölduðu forystuna á 16. mínútu þegar aftur kom hár bolti á fjær, Karen Rós missti boltann yfir sig og þar var Erla Karitas fyrst á boltann og ýtti honum í tómt markið. Eftir markið voru Skagakonur líklegri til að bæta við þriðja markinu en að heimakonur kæmust á blað og staðan sanngjörn þegar flautað var til hálfleiks, staðan 0-2 fyrir ÍA.