Fréttir

true

Fór ungur til sjós og ræturnar fyrir vestan toga sterkt

Rætt við Albert Guðmundsson sem nú stundar strandveiðar frá Ólafsvík Albert Guðmundsson er einn þeirra manna sem byrjaði ungur að árum að fara til sjós. Hann segist fyrst hafa farið á sjó á 16 ára afmælisdeginum á línubátnum Gunnari Bjarnasyni SH frá Ólafsvík. „Það kom þannig til að þegar ég var í skóla var starfskynning…Lesa meira

true

Dró úr virkni gossins í gærkvöldi

Virknin í gosinu hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt, en í gærkvöldi dró verulega úr henni, eftir kröfuga gosbyrjun í hádeginu í gær. „Nú er virknin mest á nokkrum gosopum en vegna takmarkaðs skyggnis á svæðinu er erfitt að fullyrða um hversu mörg þau eru. Hraunflæði er mest norðarlega á sprungunni og við…Lesa meira

true

Skessuhorn með sjómanna,- útskriftar og kosningaþema

Blað Skessuhorns þessa vikuna er venju fremur efnismikið. Í 64 síðna blaði er meðal annars rætt við tíu sjómenn um líf þeirra og störf í tilefni þess að Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag. Þá er í blaðinu sagt frá útskriftum í þremur framhaldsskólum í landshlutanum, auk fjölmargra frétta frá liðinni viku. Kosið verður til forseta næstkomandi…Lesa meira

true

Gríðarlega góð stemning í litahlaupinu – myndasyrpa

Í dag var skólahlaup Grunnskóla Grundarfjarðar haldið. Í fyrra var sú nýbreytni tekin upp að skólahlaupinu var breytt í litahlaup. Í ár var sama upp á teningnum og var óhætt að segja að þetta hafi tekist frábærlega. Leik- og söngkonan Viktoría Sigurðardóttir kom og stýrði upphitun fyrir krakkana og tók svo sjálf þátt í hlaupinu.…Lesa meira

true

Héldu aftur veislu sama dag og eldgos hófst

Það ætlar ekki að bregðast að þegar þessi vaski hópur á myndinni heldur veislu í heita pottinum á Jaðarsbökkum á Akranesi, þá hefst eldgos. Pottverjar hittast reglulega á þessum stað og einstaka sinnum gera menn sér dagamun. Að morgni 8. febrúar sl. hélt hópurinn þorrablót og varð vitni að því þegar jörðin á Reykjanesi opnaðist…Lesa meira

true

Eldgos hafið nærri þeim stað sem síðast gaus

Eldgosið hófst við Sýlingafell á Reykjanesi um klukkan 12:45 í dag. Það hófst af miklum krafti og með miklum hraða og er gossprungan þegar þetta er skrifað orðin yfir kílómetri að lengd og hraun spýtist 50 metra upp í loftið. Gossprungan er enn að lengjast en hún er nærri þeim stað sem síðast gaus. Í…Lesa meira

true

Kynna vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið

Borgarbyggð er nú með í kynningarferli í skipulagsgátt vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið í Borgarnesi. Sveitarstjórn samþykkti 8. maí síðastliðinn að auglýsa vinnslutillögu og er skipulagsáætlunin sýnileg í skipulagsgátt stjórnvalda frá 21. maí til og með 4. júní næstkomandi. Í deiliskipulagi eru þrjár lóðir; lóð íþróttahússins og sundlaugarinnar, lóð undir fyrirhugað fjölnota íþróttahús (hálfur…Lesa meira

true

Bláfánanum flaggað á Langasandi í morgun – Myndir

Í morgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi, tólfta árið í röð. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Meginmarkmið verkefnisins er að vernda lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er veittur þeim baðströndum…Lesa meira

true

Búast við eldgosi á hverri stundu

Áköf jarðskjálftavirkni stendur nú yfir á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesi. Samhliða því er aukin skjálftavirkni. Þá sýna gögn breytingar í borholuþrýstingi og aukna aflögun. Túlkun Veðurstofunnar er því sú að kvikuhlaup sé hafið og geti endað með eldgosi á næstu klukkutímunum.Lesa meira