
Níu af tólf frambjóðendum vilja að allir fái að taka þátt í lokakappræðum á RÚV
Níu frambjóðendur af tólf til embættis forseta Íslands hafa skrifað opið bréf til útvarpsstjóra þar sem þess er krafist að öllum frambjóðendunum tólf verði gert jafn hátt undir höfði með að heimila þeim þátttöku í kappræðum í sjónvarpssal. Þannig er farið fram á að kappræðurnar verði með sama eða svipuðu sniði og sambærilegar kappræður 3. maí síðastliðinn: „Það er að allir frambjóðendur komi fram samtímis í einum þætti. Mikil og almenn ánægja var með útsendingu RÚV á fyrri kappræðum og þá góðu yfirsýn sem kjósendur fengu með því fyrirkomulagi að hafa alla frambjóðendur saman,“ segir í bréfinu sem þau Arnar Þór Jónsson, Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon Wium, Eiríkur Ingi Jóhannesson, Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir, Helga Þórisdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Viktor Traustason rita undir. Þau sem leggja ekki nafn sitt við erindið eru því Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir.