Nokkrar litabombur voru sprengdar á meðan krakkarnir hituðu upp. Ljósmyndir: tfk

Gríðarlega góð stemning í litahlaupinu – myndasyrpa

Í dag var skólahlaup Grunnskóla Grundarfjarðar haldið. Í fyrra var sú nýbreytni tekin upp að skólahlaupinu var breytt í litahlaup. Í ár var sama upp á teningnum og var óhætt að segja að þetta hafi tekist frábærlega. Leik- og söngkonan Viktoría Sigurðardóttir kom og stýrði upphitun fyrir krakkana og tók svo sjálf þátt í hlaupinu. Frábært veður var sem skemmdi ekki fyrir upplifun hlaupara. Gleðin skein úr andlitum allra hlauparanna óháð aldri en aldursbil var nokkuð breytt, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Gríðarlega góð stemning í litahlaupinu - myndasyrpa - Skessuhorn