Mynd af gosinu tekin fyrir um kl. 13 miðvikudaginn 29. maí. Ljósm. Almannavarnir

Eldgos hafið nærri þeim stað sem síðast gaus

Eldgosið hófst við Sýlingafell á Reykjanesi um klukkan 12:45 í dag. Það hófst af miklum krafti og með miklum hraða og er gossprungan þegar þetta er skrifað orðin yfir kílómetri að lengd og hraun spýtist 50 metra upp í loftið. Gossprungan er enn að lengjast en hún er nærri þeim stað sem síðast gaus. Í aðdraganda þessa goss nú hafði meiri kvika safnast fyrir undir Svartsengi en fyrir fyrri gos og má því fastlega búast við að hraunrennsli nú verði mikið.

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að fara á neyðarstig vegna eldgossins. Gosið hafði tæplega tveggja tíma aðdraganda með tilheyrandi skjálftavirkni á svæðinu og fyrir hádegi var Grindavík, Bláa lónið og orkuverið í Svartsengi rýmd.

Skjáskot af upptöku á vef RÚV af nýja gosinu.

Eldgos hafið nærri þeim stað sem síðast gaus - Skessuhorn