
Skessuhorn með sjómanna,- útskriftar og kosningaþema
Blað Skessuhorns þessa vikuna er venju fremur efnismikið. Í 64 síðna blaði er meðal annars rætt við tíu sjómenn um líf þeirra og störf í tilefni þess að Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag. Þá er í blaðinu sagt frá útskriftum í þremur framhaldsskólum í landshlutanum, auk fjölmargra frétta frá liðinni viku. Kosið verður til forseta næstkomandi laugardag og er meðal annars að finna auglýsingar um kjörfundi í flestum sveitarfélögum.
Þeir sem vilja fylgjast með og vera þokkalega upplýstir er bent á þrjár mismunandi áskriftarleiðir, nánar hér