Mynd af gosinu tekin fyrir um kl. 13 miðvikudaginn 29. maí. Ljósm. Almannavarnir

Dró úr virkni gossins í gærkvöldi

Virknin í gosinu hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt, en í gærkvöldi dró verulega úr henni, eftir kröfuga gosbyrjun í hádeginu í gær. „Nú er virknin mest á nokkrum gosopum en vegna takmarkaðs skyggnis á svæðinu er erfitt að fullyrða um hversu mörg þau eru. Hraunflæði er mest norðarlega á sprungunni og við gosop við Sýlingarfell sem opnaðist um tíuleytið í gærkvöldi. Unnt verður að meta betur virknina og hraunflæði þegar léttir til með morgninum,“ segir í tilkynningu frá Náttúruvárhópi Veðurstofunnar.

Dró úr virkni gossins í gærkvöldi - Skessuhorn