
Skjáskot af vinnslutillögunni. Teikning: Borgarbyggð
Kynna vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið
Borgarbyggð er nú með í kynningarferli í skipulagsgátt vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið í Borgarnesi. Sveitarstjórn samþykkti 8. maí síðastliðinn að auglýsa vinnslutillögu og er skipulagsáætlunin sýnileg í skipulagsgátt stjórnvalda frá 21. maí til og með 4. júní næstkomandi.