Hressar stelpur úr 3. flokki. Frá vinstri: Margrét Arnbjörg, Birgitta Lilja, Telma Dís, Elín Anna og Tinna.

Fótboltabúðir fyrir stelpur í byrjun júní á Akranesi

Sameiginleg lið ÍA, Skallagríms og Víkings Ólafsvíkur í 3. flokki kvenna í knattspyrnu taka höndum saman í sumar og halda til keppni á USA Cup í Bandaríkjunum um miðjan júlí. Alls eru þetta 26 stelpur sem keppa sem tvö blönduð lið og eru þær skráðar með lið í árgöngum 2008 og 2009. Flestar koma frá ÍA eða 19 en fjórar frá Víkingi og þrjár frá Skallagrími.

Að sögn Thelmu Hrundar Sigurbjörnsdóttur, sem er foreldrafulltrúi í 3. flokki hjá ÍA, leggja stelpurnar mikið á sig innan sem utan vallar og hafa þær verið duglegar í fjáröflunum sem fela í sér vinnuframlag af þeirra hálfu. „Nú ætla þær að sameina fjáröflun og fótbolta og standa  fyrir fótboltabúðum fyrir stelpur sem eru fæddar 2012 til 2015. Með þessari fjáröflun ætla þær að leggja sitt af mörkum til að efla kvennaknattspyrnu og samstarf á Vesturlandi. Fótboltabúðirnar verða sunnudaginn 9. júní í Akraneshöllinni og vonandi hafa sem flestar sem eru að æfa tök á að taka þátt og kannski verður þetta líka tækifæri fyrir stelpur sem hafa áhuga á að koma og prófa að taka skrefið. Stelpurnar fá sjálfar tækifæri að efla sig sem knattspyrnukonur og vera fyrirmyndir en þær sjá um skipulagningu og framkvæmd í fótboltabúðunum með stuðningi frá foreldrafulltrúum.“

Thelma Hrund segir að lokum að stelpurnar ætla að leita eftir stuðningi fyrirtækja og einstaklinga á Vesturlandi  til að styðja við þær í þessu skemmtilega verkefni og verður vonandi eflandi fyrir alla sem taka þátt, hvort sem það er í framkvæmd eða þátttöku.

Fótboltabúðir fyrir stelpur í byrjun júní á Akranesi - Skessuhorn