Margrét Ágústa Sigurðardóttir

Margrét Ágústa er nýr framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands

Nýleg stjórn Bændasamtaka Íslands hefur gengið frá ráðningu Margrétar Ágústu Sigurðardóttur í starf framkvæmdastjóra samtakanna frá og með 1. ágúst næstkomandi. Tekur hún við keflinu af Örvari Þór Ólafssyni, sem tók við því hlutverki tímabundið í byrjun apríl síðastliðnum samhliða störfum sínum sem fjármálastjóri samtakanna. Þar áður gegndi Vigdís Häsler starfinu. Hagvangur annaðist ráðningarferlið og sóttu 28 manns um stöðuna.

Margrét Ágústa er nýr framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands - Skessuhorn