Fréttir

true

Íþróttamaður vikunnar

Með mikið sjálfstraust Í þessum lið leggjum við fyrir tíu spurningar til íþróttamanna úr alls konar íþróttum á öllum aldri á Vesturlandi. Íþróttamaður vikunnar að þessu sinni er Max Alex sem spilar knattspyrnu með Reyni Hellissandi. Nafn: Maxymilian Alex Bochra Fjölskylduhagir: Ég bý í Ólafsvík ásamt mömmu minni og pabbi minn kemur oft í heimsókn.…Lesa meira

true

Landaður afli í apríl

Í apríl lönduðu íslensk skip tæpum 155 þúsund tonnum af sjávarafla sem er 23% meira en í aprílmánuði á síðasta ári. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands. Aukning varð í veiðum á nær öllum botnfiskstegundum og 24% aukning varð sömuleiðis á uppsjávaraafla, aðallega vegna aukins kolmunna. Heildarafli á tólf mánaða tímabili frá maí 2023…Lesa meira

true

Forsetaframbjóðandinn Jón Gnarr á ferðinni á sunnudaginn

Jón Gnarr forsetaframbjóðandi heimsækir Blönduós, Borgarnes, Sauðárkrók, Stykkishólm og Akranes á næstu dögum. Í tilkynningu frá framboði hans segir að öll séu velkomin. Ferð hans um Vesturland verður á Hvítasunnudag: Dagskrá: Sunnudagur 19. maí: Stykkishólmur kl. 11 Kaffi Kyrrð, Borgarnesi kl. 13 Frystihúsið, Akranes kl. 15Lesa meira

true

Áfram er borað á svæðinu í kringum Borg

Komið hefur fram í tveimur fréttum Skessuhorns fyrr á þessu ári, að Veitur hafa verið að kanna hita í jörðu á svæðinu nærri Borg á Mýrum. Borverktakinn er Bergborun og jarðfræðiráðgjafi er ÍSOR. Tilraunaboranir þessar eru gerðar til að kanna hvort hiti leynist mögulega í jörðu við Borgarnes. Boraðar hafa verið 60 til 100 metra…Lesa meira

true

Þóra Margrét ráðin skólastjóri í Stykkishólmi

Starf skólastjóra grunnskóla og tónlistarskóla í Stykkishólmi var auglýst laust til umsóknar í vor og var umsóknarfrestur til og með 3. apríl. Tvær umsóknir bárust um starfið samkvæmt tilkynningu á vefsíðu sveitarfélagsins. Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms 15. maí var samþykkt að ráða Þóru Margréti Birgisdóttur í stöðu skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi og Tónlistarskóla Stykkishólms.…Lesa meira

true

Liðnir tímar og nýir fléttaðir saman á Breið

Á opnu húsi sem Breið nýsköpunarsetur á Akranesi gengst fyrir á morgun, föstudag frá klukkan 15-18, verður ýmislegt á dagskrá sem vakið gæti áhuga. Meðal annars verða kynntar niðurstöður skýrslu Breiðar um þara sem auðlind á Vesturlandi. Þá munu fyrirtæki sem hafa aðstöðu í húsinu verða með ýmsar kynningar Auk þess verður sitthvað sem einkum…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími í fyrsta leik

Skallagrímur lék sinn fyrsta leik í sumar í 4. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi þegar þeir mættu liði KÁ á Birtuvellinum á Ásvöllum í Hafnarfirði. Kristján Ómar Björnsson, sem verður 44 ára seint á árinu, skoraði fyrsta mark leiksins á 37. mínútu fyrir heimamenn og sex mínútum síðar bætti Ágúst Jens Birgisson við öðru…Lesa meira

true

Mannbjörg þegar strandveiðibátur sökk

Í nótt var manni bjargað úr sjónum eftir að bátur hans sökk um sex sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Veður var stillt þegar óhappið varð. Viðbragðsaðilar höfðu verið kallaðir út á hæsta forgangi klukkan 02:42 en það var skipstjóri á öðrum strandveiðibáti sem sýndi mikið snarræði og kom kollega sínum til bjargar úr sjónum. Skipbrotsmaðurinn hafði…Lesa meira

true

Mældist á 149 km hraða

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 60 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 149 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Tveir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur en annar þeirra hafði ekið á hús með þeim afleiðingum að skemmdir hlutust af.…Lesa meira

true

Eldri borgarar og Aldan fara í samstarf

Í Borgarbyggð hefur verið unnið að því að auka félagsstarf aldraðra. Á fundi með formönnum félaga eldri borgara og Öldungaráði síðastliðið haust var meðal annars rætt hvað mætti bæta þegar kemur að félagsstarfinu. Margar góðar hugmyndir komu fram og meðal annars hvort hægt væri að koma upp smíðaaðstöðu. Sú hugmynd hefur nú orðið að veruleika…Lesa meira