
Bryggjan í Ólafsvík full af fiskikörum. Myndin var tekin í mars. Ljósm. af
Landaður afli í apríl
Í apríl lönduðu íslensk skip tæpum 155 þúsund tonnum af sjávarafla sem er 23% meira en í aprílmánuði á síðasta ári. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands. Aukning varð í veiðum á nær öllum botnfiskstegundum og 24% aukning varð sömuleiðis á uppsjávaraafla, aðallega vegna aukins kolmunna.