
Öll starfsemi Öldunnar er undir einu þaki við Sólbakka. Ljósm. úr safni Skessuhorns
Eldri borgarar og Aldan fara í samstarf
Í Borgarbyggð hefur verið unnið að því að auka félagsstarf aldraðra. Á fundi með formönnum félaga eldri borgara og Öldungaráði síðastliðið haust var meðal annars rætt hvað mætti bæta þegar kemur að félagsstarfinu. Margar góðar hugmyndir komu fram og meðal annars hvort hægt væri að koma upp smíðaaðstöðu. Sú hugmynd hefur nú orðið að veruleika í samstarfi við Ölduna, sem er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu, og er staðsett á Sólbakka 4 í Borgarnesi. Þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar.