Þegar björgunarskipið Hannes Þ Hafstein kom á vettvang maraði báturinn í hálfu kafi.

Mannbjörg þegar strandveiðibátur sökk

Í nótt var manni bjargað úr sjónum eftir að bátur hans sökk um sex sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Veður var stillt þegar óhappið varð. Viðbragðsaðilar höfðu verið kallaðir út á hæsta forgangi klukkan 02:42 en það var skipstjóri á öðrum strandveiðibáti sem sýndi mikið snarræði og kom kollega sínum til bjargar úr sjónum. Skipbrotsmaðurinn hafði náð að komast í björgunargalla, en var að vonum kaldur eftir volkið.

Mannbjörg þegar strandveiðibátur sökk - Skessuhorn