Starfsmenn HB og Co. Ljósmynir: Haraldarhús

Liðnir tímar og nýir fléttaðir saman á Breið

Á opnu húsi sem Breið nýsköpunarsetur á Akranesi gengst fyrir á morgun, föstudag frá klukkan 15-18, verður ýmislegt á dagskrá sem vakið gæti áhuga. Meðal annars verða kynntar niðurstöður skýrslu Breiðar um þara sem auðlind á Vesturlandi. Þá munu fyrirtæki sem hafa aðstöðu í húsinu verða með ýmsar kynningar Auk þess verður sitthvað sem einkum gæti vakið áhuga fyrrum starfsfólks HB og Co. Valný Ben, matráður HB um árabil, mun meðal annars rifja upp gamla takta og bjóða upp á sína margrómuðu fiskisúpu. Fyrrum starfsmenn í húsinu eru sérstaklega velkomnir í minningarhorn, þar sem deilt verður minningum í máli og myndum.

Sjá nánar auglýsingu í Skessuhorni vikunnar:

Liðnir tímar og nýir fléttaðir saman á Breið - Skessuhorn