Þóra Margrét Birgisdóttir. Ljósm. stykkisholmur.is

Þóra Margrét ráðin skólastjóri í Stykkishólmi

Starf skólastjóra grunnskóla og tónlistarskóla í Stykkishólmi var auglýst laust til umsóknar í vor og var umsóknarfrestur til og með 3. apríl. Tvær umsóknir bárust um starfið samkvæmt tilkynningu á vefsíðu sveitarfélagsins. Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms 15. maí var samþykkt að ráða Þóru Margréti Birgisdóttur í stöðu skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi og Tónlistarskóla Stykkishólms. Ákvörðun bæjarstjórnar er byggð á niðurstöðu ráðgjafa Attentus sem taldi Þóru Margréti mæta best þeim kröfum sem gerðar voru í auglýsingu um starfið eftir heildarmat á hæfni umsækjenda.

Þóra Margrét ráðin skólastjóri í Stykkishólmi - Skessuhorn