Bormaður frá Bergborun blæs hér úr holunni í gær. Bergryk þeytist út henni. Ljósm. gj

Áfram er borað á svæðinu í kringum Borg

Komið hefur fram í tveimur fréttum Skessuhorns fyrr á þessu ári, að Veitur hafa verið að kanna hita í jörðu á svæðinu nærri Borg á Mýrum. Borverktakinn er Bergborun og jarðfræðiráðgjafi er ÍSOR. Tilraunaboranir þessar eru gerðar til að kanna hvort hiti leynist mögulega í jörðu við Borgarnes. Boraðar hafa verið 60 til 100 metra djúpar hitastiguls holur með það að markmiði að kanna hvort lághitakerfi leynist í berggrunninum á svæðinu. Landeigandi á viðkomandi svæði, auk Borgarbyggðar, er Þjóðkirkjan. Borun hefur staðið yfir í vetur og var svo nýverið fram haldið. Frumniðurstöður gefa ástæðu til hóflegrar bjartsýni, að sögn Þráins Friðrikssonar auðlindasérfræðings hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Áfram er borað á svæðinu í kringum Borg - Skessuhorn