
Mældist á 149 km hraða
Í liðinni viku voru höfð afskipti af 60 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 149 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Tveir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur en annar þeirra hafði ekið á hús með þeim afleiðingum að skemmdir hlutust af. Einnig eru tveir ökumenn grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og reyndist annar þeirra undir 18 ára aldri og var málið afgreitt m.a. með aðkomu foreldra og barnaverndaryfirvalda.